Stelpurnar okkar mæta Svíþjóð tvívegis áður en Evrópumótið hefst
MARIJAN MURAT / dpa Picture-Alliance via AFP)

Íslenska kvennalandsliðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn Svíþjóð í vikunni en leikirnir eru liður í lokaundirbúningi íslenska liðsins fyrir Evrópumótið sem hefst í næstu viku.

Fyrri vináttulandsleikur þjóðanna fer fram á morgun, fimmtudag klukkan 17:15 og sá síðari á laugardaginn klukkan 16:15. Fara báðir leikirnir fram í Svíþjóð þar sem landsliðið dvelur í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið.

Íslenska landsliðið kom saman til æfinga á mánudag undir stjórn Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara. Evrópumótið fer fram dagana 3.–20. desember í fimm löndum en Ísland leikur sína leiki í A-riðli í borginni Oradea í Rúmeníu. Þar mæta íslensku stelpurnar Slóveníu, Svartfjallalandi og Ungverjalandi.

Ísland hefur leik á Evrópumótinu fimmtudaginn 3. desember þegar liðið mætir Slóveníu. Tveimur dögum síðar tekur við viðureign gegn Svartfjallalandi áður en riðlakeppninni lýkur með leik gegn Ungverjalandi mánudaginn 7. desember.

Þetta verður annað Evrópumót íslenska kvennalandsliðsins í röð og fjórða Evrópumótið í sögu liðsins. Íslenska liðið freistar þess að komast áfram úr riðlakeppninni og tryggja sér sæti í milliriðli Evrópumótsins. Tvö efstu lið riðilsins tryggja sér sæti í milliriðli sem leikinn verður í Cluj-Napoca í Rúmeníu.

Leikjadagskrá Íslands

Vináttulandsleikir

  • Fimmtudagur 26. nóvember kl. 17:15 – Svíþjóð – Ísland
  • Laugardagur 28. nóvember kl. 16:15 – Svíþjóð – Ísland

Evrópumótið 2026 – A-riðill

  • Fimmtudagur 3. desember kl. 16:30 – Slóvenía – Ísland
  • Laugardagur 5. desember kl. 16:30 – Svartfjallaland – Ísland
  • Mánudagur 7. desember kl. 19:00 – Ísland – Ungverjaland

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top