Arnoldsen liggur ekkert á að yfirgefa Danmörku
Ronny HARTMANN/AFP

Danski landsliðsmaðurinn Thomas Arnoldsen er einn efnilegasti leikstjórnandi Dana en þrátt fyrir það liggur honum ekkert á að yfirgefa Aalborg og halda út í atvinnumennsku utan Danmerkur.

Hinn 24 ára gamli Arnoldsen segist vel geta hugsað sér að leika með Aalborg út ferilinn.

„Hér í Aalborg getum við barist um alla titla og ég get einnig leikið með landsliðinu. Ég gæti því vel séð fyrir mér að vera hér út ferilinn,“ sagði Arnoldsen í samtali við danska miðilinn Nordjyske.

Arnoldsen gekk til liðs við Aalborg frá Skanderborg-Aarhus árið 2023 og hefur síðan þá orðið þrívegis danskur meistari, tvívegis bikarmeistari og þrívegis unnið danska Ofurbikarinn. Þá hefur hann unnið til gullverðlauna með danska landsliðinu á Ólympíuleikunum, Evrópumótinu og heimsmeistaramótinu.

Ferill Arnoldsen hefur þó ekki verið áfallalaus. Hann greindist með ADHD og þurfti að taka sér nokkurra mánaða hlé frá handbolta árið 2025. Þá hefur hann glímt við axlarmeiðsli sem setja þátttöku hans á komandi heimsmeistaramóti í óvissu.

„Við sjúkraþjálfararnir erum sammála um að öxlin þurfi að vera 100 prósent í lagi þar sem ég hef glímt við vandamál í henni í mjög langan tíma,“ sagði Arnoldsen í samtali við TV2 Sport.

Arnoldsen útilokar þó ekki að hann muni einhvern tímann söðla um og leika utan Danmerkur.

„Hluti af mér segir að það gæti verið gaman að spila í einhverri af hinum deildunum, ef mér finnst ég vera tilbúinn til þess.“

Samningur Arnoldsen við Aalborg gildir til ársins 2029 en danska stórliðið hefur sett stefnuna á að vinna Meistaradeild Evrópu. Félagið hefur í tvígang komist í úrslitaleik keppninnar, árin 2021 og 2024, en í bæði skiptin þurft að sætta sig við tap gegn Barcelona.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top