Veszprém er liðið sem þarf að vinna á þessu tímabili
MARIUS BECKER /AFP

Norska stórstjarnan Sander Sagosen og liðsfélagar hans í Álaborg eiga erfitt verkefni fyrir höndum í Meistaradeild Evrópu á morgun þegar þeir heimsækja taplaust lið Veszprém í Ungverjalandi. Sander Sagosen gerir sér grein fyrir því hversu erfiður heimavöllur ungverska stórliðsins er en telur að reynsla dönsku meistaranna úr stórleikjum geti reynst þeim dýrmæt.

Veszprém hefur farið á kostum í Meistaradeildinni á tímabilinu og unnið alla sjö leiki sína í keppninni. Ungverska stórliðið vann 30-26 útisigur á pólska liðinu Wisla Plock í síðustu umferð á meðan Álaborg vann sterkan 34-31 sigur á þýska stórliðinu Füchse Berlin.

Viðureign liðanna hefur verið valin leikur vikunnar hjá Handknattleikssambandi Evrópu. Danski landsliðsmarkvörðurinn Emil Nielsen stendur vaktina í marki Veszprém og verður því í eldlínunni gegn löndum sínum í Álaborg.

Sagosen ræddi verkefnið fram undan í samtali við heimasíðu Handknattleikssambands Evrópu þar sem hann hrósaði ungverska liðinu og þeirri stemningu sem stuðningsmenn þess skapa á heimavelli.

„Það er enginn vafi á því að Veszprém hefur hingað til sýnt að það er liðið sem þarf að vinna á þessu tímabili. Við vitum líka að heimavöllur þeirra er einn sá erfiðasti sem hægt er að spila á,“ sagði Sagosen.

Norðmaðurinn bendir hins vegar á að leikmenn Álaborgar búi yfir mikilli reynslu af því að leika mikilvæga leiki fyrir framan fjölmarga áhorfendur og telur að sú reynsla geti nýst liðinu vel í Ungverjalandi.

„Að því sögðu höfum við spilað marga stóra leiki í stórum keppnishöllum á undanförnum tímabilum. Við ætlum að reyna að halda einbeitingunni og skila frábærri frammistöðu í allar 60 mínúturnar. Síðan kemur í ljós hvort það dugi til að ná í stigin.“

Flautað verður til leiks í Ungverjalandi klukkan 17:45 á morgun, fimmtudag. Veszprém er á toppi riðilsins með sex stig en Álaborg er í 3.sæti með þrjú stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top