Lærisveinar Arnórs halda Evrópudraumnum á lífi
Johan Nilsson / AFP

TTH Holstebro, undir stjórn Arnórs Atlasonar og með Jóhannes Berg Andrason og Benedikt Gunnar Óskarsson innan sinna raða, heldur vonum sínum um sæti í næstu umferð Evrópudeildarinnar á lífi eftir stórsigur á tékkneska liðinu HCB Karviná á heimavelli á þriðjudagskvöld.

Lærisveinar Arnórs Atlasonar unnu sannfærandi þrettán marka sigur, 41–28, í Gråkjær Arena en sigur var nauðsynlegur til að halda möguleikum liðsins á að komast áfram úr riðlinum á lífi.

Danska liðið sýndi mikinn kraft og aga frá upphafi leiks þar sem skilvirkur sóknarleikur og öflugur varnarleikur lögðu grunninn að stórsigrinum. Með sigrinum eru TTH Holstebro með örlög sín í eigin höndum fyrir lokaumferð riðlakeppninnar.

Þar bíður þeirra krefjandi verkefni en Holstebro sækir portúgalska stórliðið Benfica heim til Lissabon næstkomandi þriðjudag.

Holstebro þarf að ná í stig gegn Benfica til að tryggja sér sæti í næstu umferð Evrópudeildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top