Arnór Viðarsson skoraði níu mörk og var markahæstur í liði Karlskrona þegar liðið tapaði 31–34 fyrir Önnered á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Jafnt var í hálfleik, 16–16, en gestirnir höfðu betur eftir hlé. Måns Fredriksson fór fyrir Önnered með ellefu mörk. Þetta var fjórða tap Karlskrona í röð. Liðið situr í 11. sæti með sjö stig eftir tólf leiki og er sex stigum frá áttunda sætinu, því síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn í gær en Önnered fór upp fyrir Karlskrona með sigrinum og er nú í 10.sæti deildarinnar með níu stig. Arnór er markahæsti leikmaður Karlskrona í deildinni á tímabilinu með 70 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.