Elín Klara leikur ekki á EM – mikið áfall fyrir íslenska landsliðið
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Elín Klara Þorkelsdóttir verður ekki með íslenska kvennalandsliðinu í handbolta á Evrópumótinu sem hefst í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Handknattleikssambandi Íslands í dag.

Elín Klara meiddist í upphafi vináttulandsleiks Íslands gegn Svíþjóð í Malmö í gærkvöldi þar sem íslenska liðið vann frábæran 29-28 sigur. Það skyggði hins vegar á sigurinn að Elín Klara þurfti að yfirgefa leikvöllinn vegna meiðsla og sást hún haltra þegar íslensku stelpurnar fögnuðu sigrinum að leik loknum.

„Við vitum lítið eins og er og erum að vinna í því með Svíunum að koma henni í myndatöku á morgun,“ sagði Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari Íslands, í samtali við Handkastið eftir leikinn í gærkvöldi.

Nú liggur fyrir að meiðslin eru þess eðlis að Elín Klara getur ekki tekið þátt á Evrópumótinu og er fjarvera hennar mikið áfall fyrir íslenska landsliðið, enda hefur hún verið í stóru hlutverki í sóknarleik liðsins. Elín Klara verður þó áfram með íslenska landsliðshópnum á meðan á dvöl hans í Svíþjóð stendur.

Íslenska landsliðið mætir Svíþjóð öðru sinni í Halmstad á morgun, laugardag, í síðasta undirbúningsleik sínum fyrir Evrópumótið áður en haldið verður til Rúmeníu.

Ísland leikur í A-riðli Evrópumótsins í Oradea þar sem liðið mætir Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top