Hefur engar áhyggjur þrátt fyrir að hafa lent 20-8 undir
JOHN THYS / AFP

Sébastien Gardillou, þjálfari franska kvennalandsliðsins hefur litlar áhyggjur af stöðu liðsins þrátt fyrir afar sannfærandi frammistöðu þýska landsliðsins í vináttulandsleik þjóðanna í Stuttgart í gær.

Þýska liðið gjörsamlega yfirspiluðu þær frönsku í fyrri hálfleik og voru með tólf marka forskot í hálfleik, 20-8, þegar aðeins tæp vika er í að Evrópumótið hefjist.

Gardillou viðurkenndi mikla yfirburði þýska liðsins í fyrri hálfleik en horfði frekar til jákvæðra þátta í frammistöðu franska liðsins eftir hlé. Hann telur stöðu liðsins vera í samræmi við væntingar sínar á þessum tímapunkti í undirbúningnum fyrir Evrópumótið.

„Þjóðverjarnir voru okkur fremri í fyrri hálfleik og höfðu mikla yfirburði. Okkur tókst að standa í þeim í seinni hálfleik og verjast skothríð þeirra fyrir utan. Ég held að við séum á þeim stað sem ég bjóst við að við yrðum á. Það hefði verið ofmetnaður að halda að við gætum komið þeim í vandræði,“ sagði Gardillou í samtali við heimasíðu franska handknattleikssambandsins.

„Við töpuðum aðeins sex boltum í fyrri hálfleik en fórum illa með átta skot. Okkur tókst ekki að standast álagið frá þýska liðinu. Við reyndum að sækja hátt á leikmenn þeirra í vörninni en þær náðu að nýta sér svæðin inni á línunni. Við áttum í vandræðum með tímasetningarnar.“

Franski landsliðsþjálfarinn var hins vegar ánægður með þann vilja sem leikmenn hans sýndu í seinni hálfleik og telur frammistöðuna þar gefa góð fyrirheit um framhaldið.

„Við erum á réttri leið og það er okkar að draga lærdóm af leiknum í dag. Ég hef engar áhyggjur því ég kom í þessa leiki til að fá svör, ekki til að fyllast efasemdum,“ sagði Gardillou.

Frönsku konurnar fá tækifæri til að rétta úr kútnum á morgun þegar þjóðirnar mætast öðru sinni í Ratiopharm Arena í Neu-Ulm í Þýskalandi í síðasta leik liðanna fyrir Evrópumótið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top