U17 ára kvennalandslið Íslands vann öruggan 32–17 sigur á Tyrklandi í undankeppni EM 2027 í Þórshöfn í kvöld. Ísland komst í 7–1 á fyrstu tíu mínútunum og var með tíu marka forskot í hálfleik, 19–9. Tyrkir skoruðu tvö fyrstu mörk síðari hálfleiks og minnkuðu muninn síðar í átta mörk, 21–13. Ísland jók forskotið á ný og skoraði sex mörk í röð á lokakaflanum til að komast í 31–16. Katrín Ásta Jóhannsdóttir skoraði síðasta mark leiksins og innsiglaði 15 marka sigur. Kristín Einarsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með fimm mörk en markaskorunin dreifðist vel í leiknum. Íslensku markverðirnir vörðu samtals 17 skot. Freydís Ragna Kristjánsdóttir stóð í markinu í fyrri hálfleik og varði sex skot. Soffía Helen Sölvadóttir tók við í þeim síðari og varði ellefu. Ísland mætir Færeyjum á morgun, laugardag. Færeyska liðið vann tveggja marka sigur á Ísrael fyrr í dag. Markaskorarar Íslands gegn Tyrklandi (32–17) Kristín Einarsdóttir 5
Helga Jenný Vigfúsdóttir 4
Sara Sigurvinsdóttir 4
Sara Sveinsdóttir 4
Emilía Guðný Magnúsdóttir 3
Anja Gyða Vilhelmsen 2
Glódís Dúna Óðinsdóttir 2
Hjördís Gauja Kjartansdóttir 2
Þórhildur Káradóttir 2
Bára Ingibjörg Leifsdóttir 1
Bjartey Hanna Gísladóttir 1
Katrín Ásta Jóhannsdóttir 1
Tinna Dröfn Hauksdóttir 1

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.