Einar Rafn samningslaus og frá í nokkra mánuði
(Kristinn Steinn Traustason)

Einn reynslu mesti leikmaður Olís-deildarinnar, hægri skyttan Einar Rafn Eiðsson sem leikið hefur með KA undanfarin ár er samningslaus eftir að samningur hans við KA rann út í sumar.

Hefur Einar verið í samningsviðræðum við KA í nokkurntíma án árangurs.

Einar Rafn fór í aðgerð á mjöðm og verður frá keppni í þrjá til sex mánuði. Það er ljóst að hann mun missa af byrjun tímabilsins í Olís-deildinni. Í samtali við Handkastið fyrr í sumar sagði Einar Rafn að það væri erfitt að segja til um það hversu lengi hann yrði frá, eftir aðgerðina. Gera mætti þó fastlega ráð fyrir því að hann verði frá keppni í að verða hálft ár.

Einar Rafn hefur verið algjör lykilmaður í liði KA frá því að hann gekk til liðs við félagið frá FH sumarið 2021. Hann hefur því leikið með gulklæddum KA-mönnum fjögur tímabil.

Einar Rafn skoraði 102 mörk í 18 leikjum fyrir KA á síðasta tímabili sem endaði í 9.sæti deildarinnar. Meiðsli höfðu áfram á spilamennsku Einars en vonir standa til að aðgerðin sem Einar gekkst undir muni hjálpa honum að geta beitt sér að fullu á nýjan leik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top