
Leikstjórnandinn, Guðmundur Bragi Ástþórsson yfirgefur danska félagið, Bjerringbro-Silkeborg í sumar. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið. Guðmundur gekk í raðir danska félagsins, Bjerringbro-Silkeborg í fyrra sumar og lék því einungis eitt tímabil með félaginu en hann var með klásúlu í samningi sínum í sumar að geta leitað annað, sem hann nýtti sér. Guðmundur var í litlu hlutverki hjá liðinu á tímabilinu, skoraði 23 mörk fyrir félagið en liðið endaði í 6.sæti deildarinnar og komst ekki í undanúrslitin um danska meistaratitlinn. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Guðmundur Bragi verið í viðræðum við TMS Ringsted síðustu vikur en félagið leikur í dönsku úrvalsdeildinni. Fari svo að Guðmundur endi í Ringsted hittir hann fyrrum liðsfélaga sinn í yngri landsliðum Íslands, Ísak Gústafsson hjá Ringsted en Ísak gekk í raðir félagsins frá Val fyrr í sumar. Guðmundur sem er fæddur árið 2002 var lykilmaður í liði Hauka undanfarin ár en hann fór með Haukum alla leið í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn tímabilið 2022/2023 er liðið tapaði gegn ÍBV. Guðmundur lék einnig um tíma með liði Aftureldingar á láni frá Haukum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.