KA hefur rætt við Dag Gauta
Julien Kammerer / DPPI via AFP)

KA hefur heyrt í Degi Gautasyni og athugað stöðuna á honum. Dagur er án félags og hefur verið orðaður við endurkomu heim á Akureyri en einnig er hann í viðræðum við sitt fyrrum félag í Noregi, Arendal samkvæmt heimildum Handkastsins.

,,Við höfum rætt aðeins við hann og spurt hann út í það hvert planið er. Hvort samtalið sé virkt eða ekki , ég veit það nú ekki," sagði Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar KA í samtali við Handkastið.

,,Hann er á Akureyri í sumarfríi og æfir uppí KA-heimili alla daga þannig maður hittir hann reglulega en maður er kannski ekki beint að ræða við hann um þetta alla daga," sagði Jón Heiðar sem gat hvorki sagt til um það hvort hann væri vongóður eður ei, hvort að Dagur Gautason endi í KA.

Dagur Gautason er enn án félags eftir að stuttur samningur hans við Montpellier rann út fyrr í sumar. Dagur gekk í raðir Montpellier snemma á þessu ári eftir að sænski hornamaðurin Lucas Pellas sleit hásin. Dagur var áður að mála hjá norska félaginu Arendal þar sem hann hafði slegið í gegn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top