Kaupir Veszprem tvær stjörnur frá Lowen?
MARIUS BECKER / AFP

Þýski vefmiðillinn, Mannheimer-Morgen greinir frá því að ungverska stórliðið, Veszprem sé búið að bjóða í tvo lykilmenn þýska liðsins, Rhein Neckar Lowen. Tilboð sem þýska liðið á erfitt með að neita.

Um er að ræða markvörðinn, Mikael Appelgren og hægri skyttuna Ivan Martinovic sem lengi hefur verið orðaður við Veszprem.

Þýska miðilinn, Mannheimir-Morgen segir að um skömmu áður en æfingar fyrir nýtt tímabil hefjast gæti Rhein-Neckar Löwen misst tvo leikmenn til viðbótar, samkvæmt heimildum þeirra. Þar segja þeir að um sé að ræða gríðarlega upphæð sem um ræðir.

Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa viðræðum milli félganna staðið yfir í að verða tvær vikur en nú virðist sem félögin séu að nálgast samkomulagi. Samkvæmt sömu heimildum er tilboð Veszprém á þann veg að danski markvörður Veszprém, Mike Jensen færi í skiptum við Appelgren til Lowen en Jensen glímir við meiðsli sem hann varð fyrir á þessu ári.

Veszprem kallaði markvörð sinn, Kristóf Palasics til baka úr láni frá Benfica í kjölfarið.

Nú virðist sem vera að Veszprem vilji fá Appgelgren til að berjast um markvarðarstöðuna við Spánverjann, Rodrigo Corrales.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top