
Eftir þrettán ár hjá Kiel og 19 ár í þýsku úrvalsdeildinni tók línumaðurinn, Patrick Wiencek þá ákvörðun fyrr á þessu ári að þetta yrði hans síðasta tímabil og ákvað að leggja skóna á hilluna. Eftir meiðsli samherja hans hjá Kiel, Hendrik Pekeler spurði THW Kiel, Patrick Wiencek um endurkomu, en hann hafnaði því. Wiencek segist vera búinn að endurskipulegja líf sitt og er nú í stjórn félagsins. Eftir að Hendrik Pekeler meiddist alvarlega skömmu fyrir lok síðasta tímabils beindi íþróttastjóri THW Kiel, Viktor Szilagyi, athygli sinni fljótt að Patrick Wiencek og möguleika á að Wiencek myndi taka eitt ár í viðbót. Nú hefur Wiencek hinsvegar útilokað endurkomu á völlinn og hefur hann útskýrt ákvörðun sína. Hann viðurkennir að það hafi verið erfitt að taka þessa ákvörðun. „Ég átti þrjár, fjórar svefnlausar nætur,“ viðurkennir hann á vefsíðu félagsins. „Ég ákvað í janúar að hætta í vor og ætla að standa við þá ákvörðun. Ég er ánægður að ég gat endað tiltölulega heill.“ Í stað þess að snúa aftur á völlinn hefur Wiencek snúið sér að störfum á skrifstofu THW Kiel. Kiel leitar því enn af nýjum línumanni til að leysa af Hendrik Pekeler sem verður frá keppni í nokkra mánuði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.