Isaias Guardiola (AFP)
Íslendingaliðið, MT Melsungen eru í miklum meiðslavandræðum um þessar mundir en hvorki fleiri né færri en sjö leikmenn eru meiddir hjá liðinu. Eftir tvö naum töp í fyrstu tveimur umferðum deildarinnar gegn Rhein-Neckar Lowen og Gummersbach vann liðið loks sigur í 3.umferðinni gegn Eisenach um helgina. Melsungen vann leikinn 29-27. Það sem vakti athygli í leiknum er að aðstoðarþjálfari Melsungen, hinn 40 ára gamli Spánverji, Isaias Guardiola lék með liðinu í leiknum en hann lék síðast í þýsku úrvalsdeildinni með Lemgo tímabilið 2022/2023 en hann á langan og farsælan feril að baki. Lék Guardiola til að mynda með Álaborg, Lemgo, Ciudad Real, Athletico Madrid, Erlangen, PAUC og fleiri liðum á ferlinum. Hann lék síðustu tvö ár með neðri deildarliði á Spáni en hann lagði skóna á hilluna á sumar og varð aðstoðarþjálfari Melungen. „Það er aldrei auðvelt að vinna í Eisenach. Þess vegna erum við afar ánægðir með að hafa fengið tvö stig þrátt fyrir mikil meiðsli,“ sagði landsliðsmaðurinn Timo Kastening við þýska fjölmiðlinum Hessenschau, en Kastening er nýkominn úr meiðslum. Fjarverandi leikmenn í leikmannahópi Melsungen: Nebojsa Simic
Amine Darmoul
Reynir Þór Stefánsson
Aaron Mensing
Vlad Kulesh
Alexandre Cavalcanti
Erik Balenciaga

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.