Leikur sem ég hefði ekki nennt að horfa á fyrir mánuði síðan
Sigurður Ástgeirsson)

7.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld þegar Selfoss og FH mætast á Selfossi en leiknum er flýtt vegna þátttöku FH í Evrópubikarnum næstu helgi.

FH ferðast til Tyrklands síðar í vikunni og leikur tvo leiki gegn Nilufer í Evrópubikarnum.

Selfoss og FH eru jöfn að stigum fyrir leikinn í kvöld með fimm stig að loknum sex umferðum.

Benedikt Grétarsson var gestur í nýjasta þætti Handkastsins og hann gerir ráð fyrir hörkuleik.

,,Þetta er áhugaverður leikur. Þetta var leikur sem ég hefði ekki nennt að horfa á fyrir mánuði síðan en nú er staðan önnur. Ég held að FH klári hinsvegar þennan leik,” sagði Benedikt og bætti við að:

,,Það getur allt gerst.”

FH gerði jafntefli gegn nýliðum Þórs í síðustu umferð en mæta nú hinum nýliðunum í Olís-deildinni í kvöld áður en þeir halda til Tyrklands.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top