Daninn var ekki með Aftureldingu – Færeyingurinn og Úkraínumaðurinn frábærir
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Oscar Lykke (Egill Bjarni Friðjónsson)

Daninn í liði Aftureldingar, Oscar Lykke sem fór á kostum í síðustu tveimur leikjum Aftureldingar í Olís-deild karla lék ekki með liðinu í sigri liðsins gegn KA í KA-heimilinu í lokaleik 14.umferðarinnar í gærkvöldi. Afturelding vann leikinn sannfærandi 28-22 eftir að hafa verið 11-10 yfir í hálfleik.

Oscar Lykke var ekki í leikmannahópi Aftureldingar í leiknum en Handbolti.is hafði eftir Stefáni Árnasyni þjálfara Aftureldingar að Oscar væri að glíma við eymsli í baki og því hafi verið tekin ákvörðun að hann yrði eftir heima.

Það kom ekki að sök í leiknum í gærkvöldi en Færeyingurinn, Sveinur Olafsson og Úkraínumaðurinn, Ihor Kopysiynski fóru á kostum í liði Aftureldingar í leiknum og skoruðu alls 17 mörk samtals. Afturelding er í 3.sæti deildarinnar með 21 stig, stigi á eftir Val og Haukum sem eru í efstu tveimur sætunum.

Næsti leikur Aftureldingar er gegn ÍR í Olís-deildinni á mánudagskvöldið en það er lokaumferðin fyrir jólafri. Síðasti leikur liðsins er síðan gegn FH í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar á föstudaginn í næstu viku.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top