EM ekki í hættu hjá Gísla Þorgeiri
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gísli Þorgeir Kristjánsson (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Landsliðsmaðurinn, Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni sagði í samtali við Handkastið að EM væri ekki í hættu hjá sér vegna meiðsla sem hann hlaut í deildarleik Magdeburgar í vikunni gegn Melsungen.

Gísli Þorgeir fór í myndatöku í gær og eru meiðslin ekki talin vera alvarleg. Gísli lenti illa eftir skot og fór af velli í fyrri hálfleik leiksins en hann mætti þó aftur til leiks í seinni hálfleiknum.

,,Ég verð eiginlega að taka stöðuna dag frá degi og sjá hvernig þetta þróast. Þetta er frekar óljóst eins og staðan er. Þáttaka mín á EM er hinsvegar ekki í hættu,” sagði Gísli Þorgeir í samtali við Handkastið.

Magdeburg fer í heimsókn til Guðjóns Vals Sigurðssonar og félaga í Gummersbach á sunnudaginn og er óljóst hvort Gísli Þorgeir leiki með Magdeburg í þeim leik.

Magdeburg trónir á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar en liðið hefur unnið 20 leiki í röð í öllum keppnum.

Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 15% afslátt af öllum boozt á Hressbarnum og 15% afslátt af öllum staðgreiddum kortum út desember. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top