Norðurlöndin: Sävehof niðurlægðir á heimavelli
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Birgir Steinn Jónsson (BWM)

Þrír leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en tvö Íslendingalið voru í eldlínunni.

Sävehof fékk á baukinn á heimavelli í grannaslag gegn Alingsås en það eru aðeins tæplega þrjátíu mínútna keyrsla á milli halla liðanna. Lokatölur í leiknum urðu 20-29 fyrir gestina, Birgir Steinn Jónsson var með skárri mönnum í liði Sävehof en hann skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum þar af var eitt úr víti og gaf að auki þrjár stoðsendingar. Birgir Steinn og félagar sitja í fimmta sæti deildarinnar.

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf fjórar stoðsendingar fyrir Amo þegar þeir gerðu jafntefli í hörkuleik á heimavelli gegn Hallby. Liðin eru því áfram jöfn að stigum með 12 stig í tíunda og ellefta sæti deildarinnar.

Seinasta leik kvöldsins lauk síðan með öruggum sigri Guif á heimavelli gegn VästeråsIrsta, 30-19 en þarna voru tvö neðstu lið deildarinnar að mætast.

Úrslit kvöldsins:

Sävehof 20-29 Alingsås

Amo 32-32 Hallby

GUIF 30-19 VästeråsIrsta

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top