GróttaGrótta (Eyjólfur Garðarsson)
Toppliðin í Grill66-deild karla Grótta og Víkingur mætast í Hertz-höllinni í kvöld klukkan 18:00. Liðin eru jöfn að stigum fyrir leikinn í kvöld með 25 stig eftir fjórtán umferðir. Átta leikir eru eftir af tímabilinu. Víkingur vann fyrri leik liðanna nokkuð sannfærandi og geta stigið stórt skref í átt að sæti í Olís-deild karla með sigri í kvöld því þá færi liðið tveimur stigum uppfyrir Gróttu og væri með betri innbyrgðisstöðu milli liðanna. Handkastið ákvað að leita til nokkurra aðila í hreyfingunni og fá þá til að spá aðeins í spilin fyrir stórleikinn og toppbaráttuslaginn í Grill 66 deildar karla á milli Gróttu og Víkings. Einar Ingi Hrafnsson
Sjáum hvernig þessir aðilar rýna í leikinn.
Kristinn Björgúlfsson
Fyrir það fyrsta þá er gaman að sjá að það séu tvö lið sem eru að berjast um að fara beint upp. Liðið sem vinnur þennan leik þarf að halda kúrs út deildina. Ég held að Víkingur standist pressuna og vinni með 5 mörkum, eins og þeir gerðu í fyrri leik liðana. Tippa á 31-36.
Sigurjón Friðbjörn Björnsson
Grótta klárar þetta 27-24. Víkingar verða yfir eftir fyrri hálfleik en Gróttumenn verða sterkari á endasprettinum og klára þetta í hörkuleik á lokamínútunum.
Örn Þrastarson
Þetta verður hörkuleikur þar sem Víkingur nær undirtökunum á síðustu 10 mínútunum og siglir að lokum 4 marka sigri heim 32-28. Selfyssingurinn Sæþór Atlason verður markahæstur í leiknum með 7 mörk en það dugir ekki til.
Halldór Örn Tryggvason
Alli er núna búinn að vera ár með Víkinga. Hafa náð að spila sig vel saman og Alli taktískt sterkur. Skemmtileg blanda af reynslu og ungum leikmönnum. Gróttan með ungt og rosa skemmtilegt lið. Davíð Hlöðvers búinn að gera vel í vetur með þá en ég held að Víkingar nái að klára þetta með einu marki. 32-31. Algjör hörkuleikur framundan.
Ásgeir Jónsson
Stærsti leikur tímabilsins fram til þessa. Tvö bestu liðin takast á um toppsætið. Grótta tapaði síðast leik á móti Víkingum í lok september en Víkingar misstigu sig óvænt nýlega á móti ungmennasveit Vals, kærðu leikinn en töpuðu málinu. Grótta hefur farið með himinskautum í síðustu tveimur leikjum og skorað í þeim samanlagt 93 mörk. Nái liðið upp sínum leik vinna þeir en Víkingar munu reyna ná niður hraðanum og vera fastir fyrir. Spái jöfnum leik sem endar 30-30.
Arnar Daði Arnarsson
Það er með ólíkindum að liðin skuli vera jöfn að stigum miðað við yfirburði Víkings í fyrri leik liðanna. Grótta hafa sótt mörg stig í sínum leikjum á loka mínútum leiksins sem sýnir seigluna og viljann í liðinu en á sama tíma setur maður spurningarmerki við það, hversu oft liðið hefur verið í vandræðum í sínum leikjum í vetur. Ég yrði fyrir miklum vonbrigðum ef það verður ekki troðfullt hús og mikil stemning. Stemning sem ungt Gróttulið þekkir frá síðustu leiktíð. Það yrði hinsvegar mikið áfall fyrir Víking vinni þeir ekki þennan leik, því Aðalsteinn Eyjólfsson er nú á sínu öðru ári með Víking í sinni vegferð sem er skýr: Víkingur ætlar sér að spila í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Ég spái því að Aðalsteinn Eyjólfsson hafi betur í skákinni gegn þjálfarateymi Gróttu. Lokatölur 29-32.
Grótta vinnur 32-29 í fullri höll út á Seltjarnarnesi. Gunnar Hrafn Pálsson, sonur King Palla Þórólfs fer á kostum og hendir í 11 marka leik. Víkingar ná ekki að kalla fram sitt besta og stemmingin á Nesinu mun virka sem 8. maður og Gróttu sigur aldrei í hættu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.