Freyr og Aron með stórleik er Haukar tryggðu sér í undanúrslit
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Haukur Ingi Hauksson (Sævar Jónasson)

HK og Haukar mættust í annarri viðureign 8-liða úrslita Powerade bikasins í kvöld.

Jafnræði var á liðunum fyrsta korter leiksins, eftir það fóru náðu Haukar yfirhendinni í leiknum og komust í forystu. Haukar misstu ekki tökin á leiknum og jók forskotið jafnt og þétt út leikinn. Haukar enduðu á því að vinna leikinn með 7 mörkum, lokatölur 21-28.

Freyr Aronsson átti stórkostlegan leik með 10 mörk úr 10 skotum eða 100% skotnýtingu. Sömuleiðis var hann með 4 stoðsendingar. Markahæstur hjá HK var Tómas Sigurðsson með 5 mörk.

Aron Rafn Eðvarðsson átti sömuleiðis stórkostlegan leik í marki Hauka í kvöld, var með 19 varin skot eða um 47,5% markvörslu. Í marki HK var Brynjar Vignir Sigurjónsson með 6 varða bolta eða 22,2% markvörslu.

Með þessum sigri eru Haukar annað liðið til að tryggja sér sæti í úrslitahelgi Powerade bikarsins sem mun eiga sér stað helgina 26.-28. Febrúar. Fyrir eru KA búnir að tryggja sér sæti í úrslitahelginni og munu tvö önnur lið bætast í þann hóp samkvæmt niðurstöðu hinna beggja leikjanna sem eiga eftir að eiga sér stað í kvöld.

Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 2 fyrir 1 af öllum boozt á Hressbarnum út nóvember. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 12
Scroll to Top