Daði Jónsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
KA bar sigur úr vítum gegn Fram í 8 liða úrslitum í Powerade bikarkeppni HSÍ á dögunum og eru því komnir í Final 4 sem fram fer á Ásvöllum í febrúar. Strákarnir í Handkastinu ræddu þennan leik á dögunum og þessi sigur kom þeim að einhverju leiti á óvart þar sem þeir töldu Fram vera með sterkari hóp en KA á pappír en eins og lesendur vita hefur pappír aldrei unnið handboltaleik. Kristinn Björgúlfsson heillaðist sérstaklega er að framgöngu Daða Jónssonar, leikmanns KA, í leiknum. ,,Hann stóð sig alveg ótrúlega vel varnarlega og það er ótrúlegt hvað hann nær að gefa af sér og draga liðið með sér. Týpíksur KA gæi að þegar kveiknar í húsinu þá er hann fremstur í flokki." Arnar Daði tók undir orð Kristins og sagði það vera synd að það væru ekki fleiri hús sem biðu upp á þessa stemmningu eins og væri fyrir norðan. ,,Það er kannski eina sem karfan hefur fram yfir okkur í þjóðíþróttinni að þeir spila í minni húsum."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.