

Samkvæmt þýska miðlinum SHZ eru þýsku meistararnir í Füchse Berlin og Flensburg að berjast um þýska landsliðsmanninn og leikmann Hannover, Justus Fischer. Miðilinn greinir einnig frá því að áhugi á Fischer er ekki einungis hjá Flensburg og Füchse Berlin heldur er hann á radar hjá mörgum af topp liðunum í Þýskalandi. Justus er línumaður og hefur hann stimplað sig inn í þýska landsliðið með stöðugum og góðum frammistöðum síðustu tímabil. Á þessu tímabili hefur Fischer skorað 68 mörk í 16 leikjum með liði sínu Hannover sem hefur ekki náð sér á strik miðað við tímabilið á undan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.