Jóhannes Berg er íþróttakarl FH

Hinn 22 ára gamli og örvhenta skyttan Jóhannes Berg Andrason var á gamlársdag kjörinn íþróttakarl FH.

Jóhannes Berg var algjör lykilleikmaður í liði FH á leiktíðinni 2024-2025 sem varð deildarmeistari annað árið í röð. Jóhannes var frábær á keppnistímabilinu á báðum endum vallarins en hann var markahæsti leikmaður liðsins.
Framganga Jóhannesar gerði það að verkum að hann samdi við danska liðið Tvis Holstebro og hefur hann verið að spila vel á sínum fyrstu mánuðum með danska liðinu. Jóhannes Berg var svo valinn í 35 manna EM landsliðshóp Snorra Steins Guðjónssonar í byrjun desember.

Handkastið óskar Jóhannesi Berg til hamingju með valið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top