Ungur sænskur handknattleiksmaður látinn

Sænski handknattleiksmaðurinn Viktor Rhodin er látinn aðeins 31 árs að aldri eftir að hafa háð harða rimmu við krabbamein.

Rhodin lék með Sävehof, Önnered og svo Aranäs í Svíþjóð. Hann var leikmaður Önnered þegar hann greindist fyrst með krabbamein í heila fyrir rúmum sex árum.

Rhodin gekkst svo undir aðgerð vegna krabbameinsins og náði heilsu á nýjan leik og safnaði þreki og þrótti til að snúa aftur á handboltavöllinn. Hann æfði með hjálm á höfðinu en var bannað að nota hann í leikjum og spilaði því án hans.

Vorið 2024 kom í ljós að krabbameinið hafði snúið aftur og hrakaði heilsu hans hratt. Hann lést svo á þrettándanum þann 6. janúar síðastliðinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top