Elliði Snær Viðarsson (Sævar Jónasson)
Elliði Snær Viðarsson átti ekki góðan leik fyrir Ísland þrátt fyrir góðan sigur gegn Ítalíu í gær. Handkastið er í Kristianstad og kíktu á strákanna okkar á æfingu liðsins í hádeginu í dag. ,,Ég ætlaði mér ekkert að vera lélegur en fínt að þetta sé búið og nú byrja ég mótið þótt allir hinir hafi byrjað í síðasta leik." Elliði Snær Viðarsson segist ekki hafa þurft á neinum orðum frá Snorra Steini Guðjónssyni, þjálfara Íslenska landsliðsins en hann vissi það best sjálfur að hann var ekki góður í gær. ,,Ég vissi þetta best sjálfur og þurfti ekkert á því að halda, létt skot í dag fyrir fund en annars bara allir léttir sko." Viðtalið í heild sinni við Ellíða má sjðá í sjónvarpinu hér að neðan.
,,Skotin klikkuðu í gær og það er nú ekkert mikið flóknara en það. Þetta var ákveðin hauskúpuleikur í færanýtingu og kannski sérstaklega einn á einn í vörn í fyrri hálfleik en það var fínt að hafa bara klárað þetta núna. Allir hinir voru góðir og það er allt í lagi einn sé lélegur þegar allir hinir eru góðir."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.