Norðurlöndin: Karlskrona minnkaði muninn gegn Kristianstad
Eyjólfur Garðarsson)

Úrslitakeppnin í Svíþjóð hélt áfram í gær og í kvöld en Íslendingaliðin voru í eldlínunni í kvöld þar sem Karlskrona vann glæsilegan útisigur á deildarmeisturum Kristianstad og minnkaði muninn í 1-2 og geta með sigri á heimavelli í næsta leik jafnað metin í 2-2.

Hinn leikurinn í kvöld var þegar Hammarby tók á móti Sävehof en gestirnir gátu tryggt sig áfram í undanúrslit með sigri en heimamenn ætluðu að selja sig dýrt. Þegar skammt var eftir af leiknum var allt í járnum, 29-29 en heimamönnum tókst að skora seinasta markið í leiknum og tryggja sér nauman sigur, 30-29 og staðan því orðin 2-1 fyrir Sävehof en næsti leikur fer fram í Gautaborg, heimavelli Sävehof, Partille Arena og þá fá heimamenn annað tækifæri til að komast í undanúrslitin. Birgir Steinn Jónsson átti erfitt uppdráttar í kvöld en hann klikkaði öllum þremur skotum sínum, gaf þó tvær stoðsendingar og fékk að auki eina brottvísun.

Eins og kom fram í byrjun fréttarinnar unnu Karlskrona frábæran sigur á Kristianstad, 30-34 þar sem Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði eitt mark úr einu skoti og gaf eina stoðsendingu fyrir heimamenn á meðan Arnór Viðarsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og gaf tvær stoðsendingar fyrir Karlskrona. Næsti leikur liðanna fer fram á fimmtudagskvöldið og þá geta Karlskrona knúið fram oddaleik með sigri.

Tveir leikir fóru fram í gær en þá unnu Ystad aftur á útivelli gegn Malmö, í þetta sinn eftir framlengingu og eru því komnir í 2-1 og geta klárað einvígið á sínum heimavelli á fimmtudaginn á meðan Alingsås vann einnig á útivelli gegn Skövde og þeir geta einnig klárað sitt einvígi á heimavelli á miðvikudagskvöldið.

Úrslitin:

Kristianstad 30-34 Karlskrona

Hammarby 30-29 Sävehof

Malmö 30-32 Ystads IF

Skövde 28-31 Alingsås

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top