Snorri og Arnór semja við HSÍ til ársins 2032
Johan Nilsson / AFP

Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason hafa framlengt samninga sína við HSÍ til ársins 2032. Þetta var staðfest á blaðamannafundi HSÍ í dag.

Snorri, sem er aðalþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, og Arnór, sem gegnir hlutverki aðstoðarþjálfara, hafa stýrt liðinu saman undanfarin ár með góðum árangri. Samkvæmt nýjum samningum munu þeir halda áfram að leiða landsliðið næstu sex árin. 

Undir þeirra stjórn hefur íslenska landsliðið tekið stöðugum framförum. Liðið hafnaði í tíunda sæti á EM 2024 og níunda sæti á HM 2025, en náði sínum besta árangri í rúman áratug þegar það endaði í fjórða sæti á EM fyrr á þessu ári. 

Áhugi hafði verið erlendis frá á þjónustu þeirra beggja, en ljóst er að HSÍ lagði ríka áherslu á að halda þeim innanborðs. Samkomulagið tryggir stöðugleika í kringum landsliðið og skýra framtíðarsýn til lengri tíma.

Nánar verður farið yfir framtíðaráform landsliðsins á blaðamannafundi sambandsins síðar í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top