Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Úrslitakeppni Olís deildar kvenna

ÍBV - Haukar (Miðvikudag 18:00) / Sigurvegari: ÍBV

Ótrúlega spennandi einvígi sem mun ráðast á markvörslu og varnarleik. Haukar unnu ÍBV í síðasta deildarleik þeirra á Ásvöllum um daginn og koma því með sjálfstraust inn í þennan leik en heimavöllur ÍBV er gífurlega sterkur. Bæði lið hafa fengið lítinn undirbúning fyrir þetta verkefni sökum landsleikja. Ég held að ÍBV vinni fyrsta leikinn í einvíginu en það verður nóg af leikjum eftir milli þessara liða.

Valur - Fram (Miðvikudag 19:30) / Sigurvegari: Valur

Þetta voru svakalega einvígi hér á árum áður þegar þessi lið börðust um alla titla sem voru í boði. Það mun því miður ekki vera uppi á teningnum á morgun þar sem Valskonur eru talsvert sterkari en Fram og mun Hafdís vera í sama gír og hún var með landsliðinu á sunnudaginn og hreinlega loka Valsmarkinu.

Umspil Olís deildar karla

Stjarnan - Hörður (Miðvikudag 18:30) / Sigurvegari: Stjarnan

Stjarnan getur tryggt veru sína í Olís deildinni með sigri á morgun. Þeir gerðu góða ferð til Ísafjarðar um helgina og langar eflaust að klára þetta verkefni á heimavelli á morgun. Munurinn á þessum liðum er talsverður eins og sást í fyrsta leiknum í einvíginu þeirra en Stjarnan verður á Benedikts Marinó og Hans Jörgen á morgun sem veikir þá klárlega. Það mun þó ekki koma að sök og Stjarnan vinnur leikinn þægilega og heldur sæti sínu í deild þeirra bestu eftir langt og erfitt tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top