FH tók á mótum Haukum í þriðja leik liðanna í undanúrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en staðan í einvíginu var 1-1 fyrir leikinn í kvöld sem FH vann 27-23. ,,Þetta er ótrúlega svekkjandi að tapa hérna og mér fannst vera helling í þessu og við fengum fullt af tækifærum til að taka þetta. Mér fannst við svolítið sjálfum okkur verstir," sagði Gunnar Magnússon þjálfari Hauka í viðtali við Ingvar Örn Ákason í Sjónvarpi Símans eftir leikinn. ,,Mér fannst við hægir sóknarlega og lítið tempó í sókninni og við náðum kannski ekki að framkvæma þetta nægilega vel. Síðan fannst mér varnarleikurinn vera soft í fyrri hálfleik og við vorum allt, allt alltof soft í fyrri hálfleik. Við náðum ekki að brjóta nægilega mikið á þeim og vorum of linir. Við löguðum það í seinni hálfleik og vörnin kom upp. Þeir skoruðu mörg mörk þar sem höndin var komin upp og það komu ótrúleg mörk sem var svekkjandi að fá sig. Síðan buðu þeir okkur upp á dans í seinni hálfleik og við fengum endalaus færi til að taka þetta en nýttum það ekki." Það kom kafli í leiknum sem Haukum var fyrirmunað að skora. ,,Við fengum færi og við getum ekki beðið um það meira. Það kom kafli þar sem þeir buðu okkur upp á dans og við fengum færi eftir færi til að brjóta ísinn og komast yfir. Við vorum á þeim kafla frábærir varnarlega og þá áttum við að snúa þessu betur." Næsti leikur liðanna fer fram á föstudagskvöldið á heimavelli Hauka og verða þeir að vinna leikinn ef þeir ætla ekki að detta út keppni. Heimavöllurinn hefur verið sterkur í þessu einvígi og ættu Haukar því ekki að þurfa að örvænta strax. ,,Nú er bara að safna kröftum og undirbúa okkur vel. Við svörum fyrir þetta á föstudaginn, þetta eru bara tvö frábær lið og stutt á milli í þessu. Við mætum klárir og svörum fyrir þetta," sagði Gunnar að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.