FH einu skrefi frá úrslitaeinvíginu
J.L.Long

FH tók á mótum Haukum í þriðja leik liðanna í undanúrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en staðan í einvíginu var 1-1.

FH komu grimmir til leiks í kvöld og það var augljóst að liðið ætlaði að selja sig dýrt í þessum leik og náði liðið fljótlega fimm marka forystu, 7-2. Haukar reyndu hvað þeir gátu til að koma sér inn í leikinn aftur og náðu hægt og rólega að minnka forskotið þar sem varnarleikur þeirra batnaði og var staðan 14-12 fyrir heimamenn í hálfleik.

Síðari hálfleik var keimlíkur þeim fyrri þar sem FH var með frumkvæðið og Haukar reyndu að elta. Varnarleikurinn hjá gestunum var mjög góður og áttu FH-ingar erfiðara með að finna leið að markinu heldur en í fyrri hálfleik. Það fór svo að FH unnu að lokum fjögurra marka sigur, 27-23 og leiða því einvígið 2-1 núna og geta tryggt sér í úrslitaeinvígið á föstudagskvöldið þegar leikur fjögur fer fram.

Daníel Freyr Andrésson var frábær í marki FH í kvöld og átti stóran þátt í sigri FH-inga en hann varði alls 13 skot eða 43% markvörslu.

Birkir Benediktsson fann sjálfstraustið í kvöld og átti stórkostlegan leik í hægri skytunni og var markahæstur FH-inga með 8 mörk en hjá Haukum var Skarphéðinn Ívar Einarsson markahæstur með 7 mörk.

Næsti leikur liðanna fer fram á föstudagskvöldið á heimavelli Hauka og verða þeir að vinna leikinn ef þeir ætla ekki að detta út keppni. Heimavöllurinn hefur verið sterkur í þessu einvígi og ættu Haukar því ekki að þurfa að örvænta strax.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top