Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals er kominn með lið sitt í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins eftir að hafa verið með sópinn á lofti í Valsheimilinu í kvöld þegar Valur vann KA með fjórum mörkum 38-34. Valur vann KA því 3-0 í undanúrslitaeinvíginu en Valur hefur unnið alla fimm leiki sína í undanúrslitunum til þessa. Hægt er að sjá gang mála og tölfræði úr leiknum hér. ,,Það var sítt lítið af hverju sem skóp þennan sigur. Við vorum nokkuð góðir í vörn og nokkuð góðir í sókn. Við löguðum hlaupin okkar til baka sérstaklega í seinni hálfleik, þau voru ekki góð í fyrri hálfleik. Við náðum ágætis tökum á þessu í seinni hálfleik en síðan fannst mér við pínu værukærir en komum til baka og þéttum varnarleikinn. Við leistum vel þegar þeir voru í 7 á 6 og það var undir lokin kannski það sem skóp sigurinn, góður varnarleikur og markvarsla í seinni hálfleik," sagði Ágúst í viðtali við Handkastið eftir leik. En grunaði honum á einhverjum tímapunkti að hann myndi vinna þetta einvígi 3-0? ,,Ég leiddi svosem ekkert hugann að því, ég vissi að þetta gæti farið í allar áttir. Svona einvígi geta oft verið upp og ofan en við náðum að spila vel og gerðum þetta vel. Leikmennirnir voru agaðir og mættu vel til leiks í alla þessa leiki og voru vel undirbúnir. Ég er mjög stoltur að vera kominn í úrslit á þessum tímapunkti." Valur mætir annað hvort FH eða Haukum í úrslitum Íslandsmótsins en staðan í því einvígi er 1-1. Gústi var spurður að því í lokin hvort liðið hann haldi að vinni það einvígi. ,,Það er vonlaust að spá fyrir um það. Þetta eru tvö frábær lið, það er bara járn í járn. Ég get ekki sagt til um það."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.