Valur sópaði KA og eru komnir í úrslitaeinvígið
(Baldur Þorgilsson)

Valur og KA mættust í kvöld í N1 höllini. Leikurinn var þriðji leikur í undanúrslitaeinvíginu milli liðanna. Valur hafði unnið KA í fyrstu tveimur leikjunum í einvíginu, þeir unnu fyrsta heimaleikinn 39-21 og leik númer tvö fyrir norðan 30-33. Staðan var því 2-0 í einvíginu fyrir leik og ljóst að Valur gat með sigri í kvöld nælt sér í þriðja sigurinn í einvíginu og um leið tryggt sér í úrslitaeinvígið, KA þurfti hins vegar á sigri að halda til að fá annan heimaleik og halda einvíginu á lífi.

Allt var undir fyrir KA menn og byrjuðu þeir sterkt, þeir voru komnir snemma í þriggja marka forystu, Valsmenn náðu að jafna og var jafnræði milli liðanna framan af í fyrri hálfleik. Valur náðu yfirhöndinni síðustu tíu mínútur fyrri hálfleiks og fóru í leikhlé með fjögurra marka forystu, hálfleikstölur 19-15.

Valur náðu að halda tökum á leiknum í síðari hálfleik en KA gerðu sig þó líklega til að ná þeim og komu markamuninum tvisvar niður í tvö mörk. Það hafðist ekki hjá KA mönnum að minnka munin meira en það og endaði leikurinn með fjögurra marka sigri Vals, lokatölur 38-34.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson hjá KA var markahæstur í leiknum með 10 mörk, hjá Val var Andri Finnsson markahæstur með 8 mörk. Björgvin Páll Gústavsson var með 14 varin skot hjá Val á meðan Ágúst Elí Björgvinsson var með 11 varða bolta.

Það er því ljóst að Valur leikur til úrslita um íslandsmeistaratitilinn og fara í úrslitaeinvígið með heimavallarréttinn. Mótherji Vals er ekki ráðin en ljóst er að hann mun koma frá Hafnarfirði en undanúrslitaeinvígið milli FH og Hauka er ekki lokið, staðan þar er 1-1 og því allt opið. Þriðji leikur þeirra fer fram annað kvöld, 14. Apríl, í Kaplakrika.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 30% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top