
Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins FH - Haukar (Þriðjudag 19:30) / Sigurvegari: FH Hvernig á maður að spá í þetta einvígi? Þessi lið hafa sýnt það í vetur að það er bara dagsformið sem vinnur þessa leiki og jú kannski markvarslan. FH fékk markvörsluna í fyrsta leiknum og Haukar spegluðu spilamennsku FH í leik tvö sem þeir unnu. Haukar hafa átt erfitt með að sigra FH í Kaplakrika á undanförnum árum þó það hafi gerst einu sinni eða tvisvar. Ég held að heimavöllurinn verði áfram sterkur í þessu einvígi í kvöld og markmenn FH muni nærast á orkunni úr stúkunni og eiga annan stjörnuleik og tryggja FH sigur og 2-1 í einvíginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.