
Samningar landsliðsþjálfaranna Snorra Steins Guðjónssonar og Arnórs Atlasonar við Handknattleikssamband Íslands voru framlengdir í gær. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi sem HSÍ hélt í höfuðstöðvum Arion banka. Með framlengingunni er tryggt að þeir haldi áfram störfum með íslenska karlalandsliðinu á næstu sex ár, en þeir hafa stýrt liðinu saman undanfarin þrjú stórmót. Greint var frá því á blaðamannafundi í kjölfarið að samningarnir innihaldi ákveðnar klásúlur, meðal annars varðandi möguleg önnur þjálfarastörf, sem vöktu spurningar meðal fjölmiðla á blaðamannafundinum. Bæði Snorri Steinn og Jón Halldórsson formaður HSÍ héldu fast að sér spilunum þegar spurt var út í innihald samningsins. Meðal annars vildi Jón Halldórsson formaður HSÍ engu svara varðandi það hvort Snorri Steinn mætti þjálfa félagslið samhliða íslenska landsliðinu öðru en að það væri ýmislegt í samningnum sem væri algjörlega þeirra á milli. ,,Ég held að það liggi í hlutarins eðli að þegar þú gerir svona langan sameining að þá eru einhverjar klásúlur. Bæði hvað varðar mig sjálfan og eins fyrir HSÍ. Þetta voru hlutir sem við fórum mjög vel yfir hvernig klásúlurnar eru í samningnum. Hvernig þetta er orðað í samningnum finnst mér að eigi heima á milli mín og HSÍ en vissulega eru einhverjar klásúlur," sagði Snorri Steinn á blaðamannafundinum í gær. ,,Ég endurtek það sem Snorri Steinn sagði, við fórum ítarlega yfir þennan samning og við fórum yfir allan mögulegar stöður sem geta komið upp. Allt sem er í samningnum er bara okkar á milli þangað til annað kemur í ljós," sagði Jón Halldórsson formaður HSÍ þegar hann var spurður út í það hvort Snorri Steinn mætti þjálfa félagslið samhliða íslenska landsliðinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.