Gerir ráð fyrir að vera áfram í Kórnum
Egill Bjarni Friðjónsson

Vinstri hornamaður HK í Olís-deild karla til síðustu tveggja ára, Andri Þór Helgason rennur út af samningi hjá sínu uppeldisfélagi í sumar.

Andri gerir hinsvegar ráð fyrir því að vera áfram í herbúðum HK á næsta tímabili en hann segist vera í viðræðum við stjórn HK um framlengingu á nýjum samningi.

,,Meðan ég er ennþá meiðslafrír og hef gaman að þessu þá finnst mér líklegt að ég taki slaginn áfram," sagði Andri Þór í samtali við Handkastið.

Andri hefur komið víða við á ferlinum en hann hefur leikið með Fram, Stjörnunni, Gróttu og Aftureldingu en gekk í raðir HK fyrir síðustu leiktíð.

Andri skoraði 98 mörk fyrir HK á þessu tímabili og var fjórði markahæsti leikmaður liðsins í vetur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top