Sænska félagið IFK Kristianstad er farið að móta næstu skref í þjálfaramálum fyrir næstu leiktíð en núverandi þjálfari liðsins Anders Hallberg er á leið til Portúgals og tekur við Benfica í sumar. Samkvæmt upplýsingum Sportbladet stefnir félagið á að vera með þjálfarateymi á næstu leiktíð. Þar er Gunnar Steinn Jónsson, sagður vera helsti kandídatinn til að koma inn í þjálfarateymið við hlið Björns Sätherström sem er í dag aðstoðarþjálfari Anders Hallberg. Gunnar Steinn, sem lék með Kristianstad á árunum 2016 til 2018 er búsettur í Svíþjóð og hefur verið í kringum lið Hammarby í vetur. Viðræður milli hans og félagsins eru sagðar á næsta leiti. Gunnar Steinn þjálfaði Fjölni í Olís-deild karla á síðustu leiktíð en flutti síðan til Svíþjóðar síðasta sumar. Kristianstad hefur verið að skoða nokkrar leiðir í leit sinni að nýjum þjálfara, þar á meðal að ráða nýjan aðalþjálfara, halda Sätherström í stærra hlutverki eða innleiða þjálfarateymi og bendir flest nú til síðastnefndu leiðarinnar samkvæmt sænskum fjölmiðlum. Í gær tryggði Kristianstad sér sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar eftir sigur á Karlskrona 3-1 en Kristianstad eru ríkjandi deildarmeistarar. Einar Bragi Aðalsteinsson leikur með liðinu og þá eru þeir Baldur Fritz Bjarnason og Andri Erlingsson báðir á leið til félagsins í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.