Leikur Dagur Árni meira á tímabilinu?
Sævar Jónasson

Dagur Árni Heimisson var í leikmannahópi Vals í fyrsta leik Vals gegn KA í undanúrslitum Íslandsmótsins eftir langa fjarveru. Hann var hinsvegar ekki í leikmannahópi Vals í leik tvö og þrjú en Valur vann KA í undanúrslitaeinvíginu 3-0 og er því komið í úrslitaeinvígið.

Þar mætir Valur annað hvort FH eða Haukum en FH leiðir það einvígi 2-1 en liðin mætast í fjórða sinn á Ásvöllum í kvöld.

Í endurkomu sinni skoraði Dagur Árni tvö mörk þar af annað úr vítakasti og kom lítillega við sögu. Nú er hinsvegar óljóst hvort hann leiki meira með Val á tímabilinu. Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals var spurður út í stöðuna á Degi eftir sigurinn gegn KA á mánudagskvöldið.

,,Það verður að koma í ljós. Hann hefur verið að glíma við erfið hnémeiðsli og við verðum að sjá til hvernig það þróast í framhaldinu."

Dagur Árni var keyptur til Vals frá KA á metfé í sumar en hefur eins og fyrr segir verið óheppinn með meiðsli og ekki náð að stimpla sig almennilega inn í Valsliðið í vetur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top