Mörg barnaleg mistök á stuttum tíma
Sævar Jónasson

Gunnar Magnússon þjálfari bikarmeistara Hauka var að vonum svekktur eftir tap liðsins gegn FH á heimavelli í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Sigur FH-inga sendir Hauka í sumarfrí sem töpuðu einvíginu gegn FH 3-1.

FH hafði betur í leiknum í kvöld 36-35 í ótrúlegum handboltaleik sem var sveiflukenndur en FH hafði mikla yfirburði á tíma í leiknum. Haukar fengu hinsvegar gullið tækifæri að koma leiknum í framlengingu í lokasókninni en tvö dauðafæri fóru forgörðum.

,,Þetta er ótrúlega svekkjandi, við fengum tvö tækifæri til að koma þessu í framlengingu, algjör dauðafæri og gerðum vel í að koma til baka. Við sýndum ótrúlegan karakter og þrautseigju en það er stutt á milli í þessu sporti og í þessu einvígi var ekkert á milli liðanna. Það er svekkjandi að detta út," sagði Gunnar Magnússon í viðtali við Guðjón Guðmundsson beint eftir leik en leikurinn var sýndur í beinni útsendingu í Sjónvarpi Símans.

Úr stöðunni 10-10 breyttu FH-ingar stöðunni í 11-17 sér í vil. Hvað gerðist á þeim tímapunkti?

,,Það kom 5-6 mínútur sem við köstuðum þessu frá okkur á ótrúlega skömmum tíma. Ég er ekki með skýringar á því. Við gerum mörg barnaleg mistök á stuttum tíma, fyrir það erum við með allt undir Control og með leikinn í okkar höndum en við köstum þessu frá okkur," sagði Gunnar við Gaupa.

SJÁÐU TVÖFALDA VÖRSLU DANÍELS FREYS SEM KOM FH Í ÚRSLITAEINVÍGIÐ

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top