Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Haukar - FH (Föstudagur 19:00) / Sigurvegari: Haukar

Allt undir á föstudagskvöldi milli Hauka og FH. Hvað viljum við meira? Jú kannski leik fimm í þessu einvígi. Allir leikirnir hafa unnist á heimavelli og ég held það verði engin breyting á í kvöld. Haukar með bakið upp við og vegg á heimavelli segir mér að þeir muni leggja allt í sölurnar. Það vantaði ekki mikið uppá í síðasta leik hjá þeim og þeir munu fá annan stórleik frá Aroni Rafni líkt og í leik tvö. Haukar vinna og handbolta áhugafólk fær drauma oddaleikinn sinn á mánudagskvöldið!

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top