Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Fram - Valur (Laugardagur 15:30) / Sigurvegari: Valur

Fram voru með yfirhöndina í fyrsta leiknum í 55 mínútur en það dugði ekki til. Þetta var leikurinn til þess að stela í seríunni og ég óttast fyrir hönd Frammara að Valskonur vinni þetta núna 3-0. Valur mun ekki eiga annan svona slæman leik eins og í leik eitt og vinna þetta örugglega í Úlfarsárdalnum á morgun.

Haukar - ÍBV (Laugardagur 16:00) / Sigurvegari: Haukar

Haukar gerðu góða ferð til Eyja á miðvikudaginn og unnu að lokum þriggja marka sigur. Lykilmenn ÍBV náðu sér ekki almennilega á strik í leiknum og eiga þeir t.d. Amaliu Fröland alveg inni. Ég tel samt að Haukar verði sterkari á morgun og komist í 2-0 í einvíginu þar sem þeim hefur gengið vel með ÍBV á undanförnu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top