

Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson hafa framlengt samningum sínum við ÍR til ársins 2029. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu. Báðir spiluðu þeir lykilhlutverki á nýafstöðnu tímabili í Olís-deild karla er ÍR féll úr Olís-deildinni eftir tveggja ára veru í deildinni. Jökull Blöndal var eftirsóttur á tímabilinu og greindi Handkastið meðal annars frá því að Fram hafi haft áhuga að kaupa hann frá ÍR í upphafi tímabils. ,,Framlengingar á samningum Jökuls og Patreks er mikið gleðiefni fyrir okkur ÍR-inga enda ungir og uppaldir leikmenn. Þær undirstrika einnig stefnu handknattleiksdeildar að endurheimta sæti meistaraflokks karla í Olís-deildinni að ári," sagði Kristinn Jóhannsson formaður handknattleiksdeildar ÍR. Báðir hafa þeir verið viðloðandi yngri landslið Íslands en Patrekur Smári er fyrirliði 2008 landsliðs Íslands og þá hefur Jökull Blöndal verið í æfingahópnum í 2006 landsliði Íslands. Um er að ræða gríðarlega jákvæðar fréttir fyrir ÍR fyrir framhaldið en ljóst er að þeirra langmarkahæsti leikmaður, Baldur Fritz Bjarnason yfirgefur liðið í sumar og gengur í raðir Kristianstad í Svíþjóð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.