
Füchse Berlin og Bergischer áttust við í úrslitum þýska bikarsins í dag. Füchse Berlin höfðu betur gegn Lemgo í undanúrslitum en Bergischer unnu Magdeburg í miklum spennuleik í gær þar sem þurfti vítakast keppni og bráðabana til að finna sigurvegara. Úrslitaleikurinn í dag náði þó aldrei að vera spennandi þar sem Füchse Berlin stýrðu ferðinni algjörlega í Lanxess Arena í Köln þar sem úrslitakeppnin fór fram. Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari Bergischer og náðu hans drengir að standa í Füchse Berlin framan af fyrri hálfleik en undir loks hálfleiksins sigldu Berlínar Refirnir framúr og leiddu með fimm mörkum í hálfleik 22-17. Þeir slógu svo ekkert af í síðari hálfleik og unnu að lokum öruggan níu marka sigur, 42-33, og Füchse Berlin því þýskir bikarmeistarar. Dönsku skytturnar í liði Füchse Berlin voru allt í öllu í dag og skoraði Lasse Andersson 10 mörk og Mathias Gidsel var með 9 mörk. Lasse Andersson var einnig valinn verðmætasti leikmaður helgarinnar. Lemgo og Magdeburg áttust við í leik um þriðja sætið í morgun og fór svo að Lemgo hafði betur, 35-31. Tim Suton var markhæstur í liði Lemgo með 8 mörk en hjá Magdeburg skoraði Matthias Musche 6 mörk. Íslensku strákarnir í Magdeburg höfðu hægt um sig í leiknum og skoruðu Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon tvö mörk hvor en Elvar Örn Jónsson gerði eitt mark.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.