
Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins settist niður með Arnari Daða Arnarssyni eftir að hafa skrifað undir sex ára samning við HSÍ á dögunum. Í viðtalinu var Snorri Steinn spurður út í Aron Pálmarsson sem nú er kominn inn í þjálfarateymi FH í Olís-deild karla. ,,Væri einhver draumur að fá Aron Pálmarsson inn í þjálfarateymi landsliðsins?" ,,Ég hef alveg pælt í því og hugsa oft um þetta og tala stundum við hann. Ég er í ágætum samskiptum við hann en ég held að það sé líka hollt fyrir hann, okkur og liðið að vera aðeins án hans. En ef Aron Pálmarsson hellir sér út í þjálfun þá held ég að þú sjáir hann alveg aftur á stórmóti." Viðtalið við Snorra Stein er hægt að hlusta á hér að neðan og í öllum hlaðvarpsveitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.