Gríski hornamaðurinn, Orfeus Andreou sem gekk í raðir HK frá Víði í Garði undir lok janúar hefur framlengt samningi sínum við HK. Þetta tilkynnti HK á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag. ,,Orfeus hefur komið mjög sterkur inn í hópinn frá því hann gekk til liðs við HK og hefur fallið vel inn í bæði leik liðsins og liðsheildina. Það ríkir mikil ánægja innan félagsins með framlag hans til þessa," segir í tilkynningunni frá HK. ,,Framlenging hans er mikilvægt skref fyrir HK og við hlökkum til að sjá hann halda áfram að vaxa og styrkja liðið á komandi tímabili," segir ennfremur í tilkynningunni. Grikkinn skoraði 22 mörk fyrir HK í þeim níu leikjum sem hann lék með liðinu í Olís-deildinni og í úrslitakeppninni en hann hafði leikið með Víði Garð í 2.deildinni síðustu tímabil og verið maðurinn á bakvið uppganginn í handboltanum í Garð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.