Aron Hólm Kristjánsson hefur framlengt samningi sínum við Þór til tveggja ára. Þetta tilkynnti Þór á samfélagsmiðlum sínum í morgun. Aron Hólm sem er uppalinn í Þór hefur allan inn feril leikið með félaginu. ,,Aron er uppalinn Þórsari og hefur verið mikilvægur hlekkur meistaraflokks undanfarin ár," segir í tilkynningunni frá Þór. Þórsarar voru nýliðar í Olís-deild karla og enduðu í 9.sæti deildarinnar og voru hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina. ,,Við erum gríðarlega spenntir að sjá hann áfram á vellinum með okkur á komandi tímabili í Olís deildinni." Aron Hólm skoraði 27 mörk í 17 leikjum með Þór í Olís-deildinni í vetur en liðið lék undir stjórn Daniels Birkelund sem tók við liðinu síðasta sumar og verður áfram með liðið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.