
Fjórir reynslu miklir leikmenn Hauka gætu lagt skóna á hilluna í sumar en samningur þeirra við félagið rennur út í sumar. Haukar féllu úr leik í úrslitakeppni Íslandsmótsins á föstudagskvöldið eftir tap gegn FH á heimavelli með einu marki en FH hafði betur í einvíginu 3-1 og mætir Val í úrslitaeinvíginu. Úrslitaeinvígið hefst næstkomandi föstudagskvöld. Rætt var um leik Hauka og FH í uppgjörsþætti Handkastsins sem hægt er að hlusta á í öllum hlaðvarpsveitum. Fjórir leikmenn Hauka gætu hafa leikið sinn síðasta leik á ferlinum á föstudagskvöldið en Adam Haukur Baumruk, Aron Rafn Eðvarðsson, Brynjólfur Snær Brynjólfsson og Þráinn Orri Jónsson eru allir að renna út af samningum hjá Haukum í sumar. Félagið hefur fengið til sín Hjört Inga Halldórsson frá HK og þá hefur línumaðurinn Sigurður Jeffersson verið orðaður við Hauka frá HK. Aron Rafn lagði skóna á hilluna síðasta sumar en kom aftur inn í lið Hauka rétt fyrir tímabilið sökum meiðsla Vilius Rasimas. Brynjólfur Snær sem er fæddur árið 1993 hefur leikið allan sinn feril með Haukum og það sama má segja um Adam Hauk Baumruk sem er einu ári yngri en Brynjólfur. Þráinn Orri var að klára sitt sjötta tímabil með Haukum en hann gekk í raðir félagsins sumarið 2020 frá Bjerringbro-Silkeborg í Danmörku. Þar á undan lék hann í tvö tímabili með Elverum í Noregi en hann er uppalinn hjá Gróttu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.