
Kristófer Máni Jónasson og liðsfélagar hans í FH eru komnir í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn en þar mætir Kristófer Máni hans fyrrum liðsfélögum í Val. Kristófer hóf leiktíðina í Val en skipti yfir í upphafi tímabils eftir að Arnór Snær Óskarsson gekk í raðir Vals. FH sló út Hauka í undanúrslitum úrslitakeppninnar í síðustu viku eftir eins marks sigur á Ásvöllum 36-35 í fjórða leik liðanna. Kristófer Máni sem lék lengi vel með Haukum áður en hann gekk í raðir Vals skoraði eitt krúsídúllu mark í sigri FH gegn Haukum í síðustu viku. Farið var yfir markið í Handboltahöllinni sem sýnd er í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.