
Ágúst Birgisson leikmaður FH er nú í fullum undirbúningi fyrir úrslitaeinvígi FH og Vals sem hefst á föstudagskvöld í Valsheimilinu. Ágúst Birgisson var búinn að leggja skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en snerist hugur og var mættur aftur út á parketið í upphafi tímabils. Nú bíður hans verðugt verkefni, rimma gegn Val í úrslitum Íslandsmótsins. Þetta hlýtur að vera ein af ástæðunum fyrir því að hann hafi viljað halda áfram, það er, að geta spilað til úrslita um Íslandsmeistaratitlinn aftur? ,,Ég var bara hættur í sumar og það var bara 100% ákveðið en síðan þegar tímabilið byrjaði þá kom eitthvað kítl í magann og þá langaði mér að halda áfram og skrokkurinn var góður og ég sé ekki eftir því í dag. Þetta hefur verið gaman síðustu mánuði," sagði Ágúst Birgisson í viðtali við Handkastið á blaðamannafundi sem HSÍ og Olís hélt í aðdraganda úrslitaeinvígisins. En verður þetta hans síðasta rimma á ferlinum? ,,Eftir síðasta sumar veit ég ekki hverju ég á að svara strax, það kemur í ljós. Skrokkurinn er góður og mér líður vel," sagði Ágúst en lengra og ítarlega viðtal við hann má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.