Leggur skóna á hilluna eftir sex ár í Breiðholtinu
Sævar Jónasson

Ólafur Rafn Gíslason markvörður ÍR síðustu sex tímabil hefur ákveðið að láta staðar numið á handboltavellinum og leggja skóna upp í hillu. Þetta tilkynnti ÍR á samfélagsmiðlum sínum í morgun.

Ólafur lék með ÍR í Olís-deild karla á þessu tímabili en liðið féll úr deildinni eftir tveggja ára dvöl í deild þeirra bestu. Ólafur var með samning við ÍR til ársins 2027 en hefur ákveðið að segja þetta gott.

,,Óli, eins og hann er iðulega kallaður, kom til félagsins árið 2020 og varð strax mikill félagsmaður. Hann lék yfir 100 leiki fyrir meistaraflokkinn bæði í Olís og Grill66 deildinni. Leikgleðin skein af Óla þegar hann var á vellinum en innan liðsins var hann einnig mikill leiðtogi. Auk þess að verja mark okkar ÍR-inga starfaði hann um tíma sem markmannsþjálfari yngri flokka og gerði það af miklum metnaði," segir í tilkynningunni frá ÍR en Ólafur er uppalinn hjá Haukum.

,,Mig langar að nýta tækifærið og þakka öllum stuðningsmönnum ÍR fyrir ótrúlegan stuðning undanfarin ár. Minningarnar um tímann minn með félaginu verða ómetanlegar og er ég þakklátur að fá að upplifa það með ykkur. Ég vil einnig þakka öll þjálfurum, liðsfélögum og sjálfboðaliðum fyrir samstarfið. Sama hvað næsti kafli hjá mér hefur í för með sér. Þá óska ég félaginu alls hins besta í framtíðinni og mun alltaf fylgjast með og styðja ÍR," sagði Ólafur sjálfur í tilkynningunni sem ÍR birti í morgun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top