
Markvörðurinn, Sigurður Dan Óskarsson hefur framlengt samningi sínum við Stjörnuna. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í morgun. Sigurður Dan gerir tveggja ára samning við Stjörnuna sem á dögunum tryggði veru sína í Olís-deildinni eftir sigur á Herði í umspili um laust sæti í Olís-deildinni. ,,Það gleður okkur mikið að Sigurður Dan Óskarsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til tveggja ára. Sigurður er góður leikmaður, frábær karakter og mikill félagsmaður. Ávallt tilbúinn að aðstoða við hinu ýmsu verk," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. ,,Við hlökkum mikið til að sjá hann standa vaktina í markinu næstu tímabil," segir ennfremur. Sigurður sem er uppalinn í FH var að klára sitt sjötta tímabil hjá Stjörnunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.